30nóvember

piff

Jæja er ekki kominn tími á annað blogg held það sé soldið langt síðan ég bloggaði síðastÓákveðinn 
En það er mikið búið að ganga á hérna drama kjaftæði sem nokkrir vita af þannig að ég ætla ekki að vera að skrifa eitvað um það hérna.  Farin að hlakka til að koma heim í smá ró og næði og djamm Glottandi og by the way hver vill koma með mér á djammið á annan í jólum og á gamlárskvöld, er byrjuð að taka niður pantanir sko Svalur 
Fór á painting maraþon málaði samt ekki rassgat heldur drakk bara með hinum,  kláraði maraþonið með því að vaka frammað morgunmat sem var orðið soldið erfitt í endann.  

Er að rembast við að gera lokaverkefnið mitt en einhvernvegin fæ ég ekki sjálfa mig til að gera það iss...

en þetta verður bara stutt blogg ekkert að segja nema...

vi ses eftir 3 uger
30. nóvember 2007 klukkan 17:28
Lóa Júlía Antonsdóttir
6 athugasemdir
13nóvember

jeg bor pĺ de SLOT....einkahúmor :P

Jæja loksins komið blogg.  Ætlaði að blogga fyrir nokkrum dögum en internetið fraus og allt fór í hakk búin að skrifa alveg heilann helling þannig að ég fór í það mikla fílu að ég hef ekki einusinni viljað tékka á síðunni minni en ég er allavega orðin rólegri núna þannig að ég ákvað að gera aðrea tilraun í því að blogga en ætla ekki að skrifa allt upp eins og það var því það tekur alveg heila eilífð.
Ætla bara að
gera
smá summarí.  Hefur verið djamm síðustu 3 helgar og smá á virkum dögum en það er bara af því að ég fór til köben með skólanum og Ragga sagði að maður færi ekki til köben nema að fá sér bjór .  En annars þá er ég búin að vera eithvað þreitt og listalaus síðustu daga og lifi nánast á kaffinu einu saman og líka komin með smá heimþrá langar að komast heim í jólafílinginn.  Allt frábært annars hérna Hrafnhildur kom að tékka á slottinu og fannst það alveg svakalega flott sýndi henni meira að segja leynistigana sem eru að hrynja í sundur og held ég að hún hafi orðið smá hrædd þar en þori ekki alveg að fara með það.  Verkefnavikurnar eru að fara að byrja eftir held ég viku og ég hef ekki grænann grun hvað ég á að gera, kannski að spurja mömmu þar sem að lokaverkefnið á eiginlega að vera jólagjöfin þeirra en þá má ég held ég ekki tala um það hérna á blogginu þar sem maður veit aldrei hvenar henni dettur í hug að tékka á síðunni minni.

Bara að láta vita að ég er komin með myndasíðu og endilega að kommenta þar sem ég hef bara fengið eitt komment og það var frá mömmu herbergisfélagans míns


slóðin er: 
http://www.bubbleshare.com/users/profile/398950 

en annars nenni ekki að pikka meira inn endilega skrifa í gestabók og kommenta

Kjerlig Hilsen Lóa

P.S. Bakgrunnurinn er fjólublár því ég gerði vitleysu sem ég get ekki lagað :S

13. nóvember 2007 klukkan 21:36
Lóa Júlía Antonsdóttir
8 athugasemdir
26október

Mjá

Jæja þá er komið að öðru bloggi, veit ekki hve langt það verður þar sem að ég er veik þannig að ég veit ekki alveg hvort ég meiki að skrifa mikið.  Ekkert mikið búið að gerast komumst að því að við erum þekktar í skólanum fyrir að vera alltaf 3 saman bestu vinkonur.  En það er ég Kristin og Ida, nú hafa 2 spurt okkur ef einhver af okkur er frá sama landi eða í sama herbergi,  Einn gekk svo langt að segja að allt í einu byrtust þessar 3 nornir hlaupandi um allann skólann making "evil" plans hehe. En allavega Þessa vikuna byrjuðum við að teikna eftir módeli, módelið var nakið og var hálf skrítið að eftir tímann gat maður lent í samræðum við konu á aldri við mömmu mína í náttslopp og með hann opinn!! JÁ ÉG SAGÐI OPINN!! vá hvað mér fannst þetta eithvað vandræðalegt, en allavega ég er komin hálfa leiðina með málverk af henni og er hún í þeim fallega lit grænum....

Er búin að vera veik núna í 2 daga en ég hef samt mætt í tíma því ég vil klára þetta verkefni..
Eftir tímann í dag var ég samt alveg að drepast sat á stól og kennarinn minnBente kom að tala við mig..
Bente: Lóa are you all right??
Ég: yeah im okey just a little syg
Bente: (snertir á mér ennið) yeah your right you are sick, what are you doing here
Ég: I really didnt want to miss this class so i just decided to come
Bente: Wow thats great i like that áhuga ( man ekki enska orðið:P), and i think you did great today!

Hrósið og vonda súpu í hádeginu sem var með beikoni í guð þeir setja beikon í allt hérna örugglega líka í grænmetisréttina issssssssssS
en anyways þá fór ég að sofa og svaf framm að kvöldmat eftir hann fór ég að sýna Kristinu málverkið mitt því þá mér leið drulluilla þá nennti ég ekki að fara að sofa eftir þá skruppum við á mótorhjólinu hennar
útí búð og já ég sagði MÓTÓRHJÓLINU HENNAR!!! jeijj það var svo cool , sat í hliðarvagninum á JAVA hjólinu hennar, svo fórum við uppá herbergi og lituðum á mér hárið, efast um að ég myndi gera eithvað þannig þegar ég hef verið veik heima
en anyways þá er ég hætt að skrifa er að fara að fá hausverk...

Halloween ball á morgun ég og verð jólakötturinn ......meowwwww.
26. október 2007 klukkan 21:43
Lóa Júlía Antonsdóttir
4 athugasemdir
14október

myndir

komnar nokkrar myndir
14. október 2007 klukkan 21:49
Lóa Júlía Antonsdóttir
Engin athugasemd
13október

Ich bist eine Berliner

Okey ég hef allavega afsökun fyrir að blogga ekki í síðustu viku þar sem að ég var í Berlín með ekkert netsamband. En ég veit að ég hef ekkert í höndunum til að afsaka bloggleysið síðasta mánuðinn annað en það að ég hef varla tíma til að komast í tölvu en Ásgerður ég held að málið sé ekki að ég svari ekki heldur að netið hérna sé svo lélegt að ég bara næ sjaldan tengingu við það og er dettandi inn og út...önnur ástæða fyrir að ég nenni ekki að vera á netinu.  Allavega þá hefur ekkert gertst neitt sérstakt þennann mánuðinn annað en að ég er búin að hanga mikið með Kristinu og Idu. 

En ætlaði að skella inn ferðasögunni frá Berlín og svo koma myndir á morgun

Lögðum af stað á Sunnudaginn 7. október og vorum í heila 7 tíma að keyra í rútu til Berlínar,  Ég, Kristin, Ida og Ragga vorum saman í herbergi.  Á Mánudaginn var svo 5 tíma göngutúr með leiðsögumanni um borgina þar sem við sáum meðal annars check point charlie og það sem eftir var af berlínarmúrnum.  Ákváðum að fara í second hand búð eftir það til að drepa tímann og fundum hello kitty búð hliðina á henni þannig að það var svakalega gaman.  Ætluðum að fara í klúbb en það var ekki hægt að komast inn þar sem hann var svo vinsæll þannig að við 3 fórum bara á röltið.  Ekkert neitt merkilegt á þriðjudaginn nema endalaus söfn en á miðvikudaginn var farið í Hardwax record store sem er einhver falin electro tónlistarbúð eftir það var farið í nokkrar litlar tónlistarbúðir og ég held að ég hafi aldrei keypt jafn mikið af diskum en ég keypti mér 6 diska.  Um kvöldið var svo farið á einhvern electro klúb sem var í stórri skemmu og svona industrial look á staðnum, helling að scary þýskum steratröllum og við entumst þarna held ég í 2 tíma þar sem við sáum ekki tilgang í að vera á stað þar sem við vorum ekki að skemmta okkur.  Á fimmtudaginn var svo stóri shopping dagurinn okkar og var verslað smá um kvöldið átti svo að fara á death by kite sem er danskt indie band sem var með tónleika en greyið Ida komst ekki inn þar sem hún verður ekki 18 ára fyrr en í desember og fórum við þá með henni heim að drekka með dönskum strák sem komst ekki inn þar sem hann var ekki með nein skilríki.  Föstudagurinn var erfiðasti dagurinn þar sem að fæturnir voru farnir að vera ekkert smá þreittir fórum á Retró IKEA safn eða the Bauhaus safnið og svo að versla aðeins, um kvöldið fóru svo allir út að borða saman á indverskum stað.  Seinna var drukkið niðri á hótelbarnum og planið að fara á stað sem heitir White trash en það er víst einhver pönk staður en við "gleymdum" skónum okkar uppá herbergi þannig að við ákváðum að fara ekki.  Á leiðinn upp hittum við Erik og annann norskann strák sem nennti ekki heldur út og ég var eithvað að grínast í Erik að ég ætlaði ekki að pota í augað á honum aftur þannig að hann þyrfti ekkert að vera hræddur við mig en ég potaði óvart í augað á honum síðast þegar ég talaði við hann full (var að detta og ætlaði ekki að detta á hann miðaði á veggin en hendin fór í augað á honum...úps) og þá sðurði hann hvort hann mætti ekki bara pota í augað á mér þannig að við yrðum kvitt og ég lokaði auganu hann potaði laust í það og við urðum kvitt, Ég og Kristin ákváðum þá að fara að stríða Idu soldið það sem hún var farin að sofa þannig að við ætluðum að kvísla í eyrað á henni meðan hún svæfi að hún væri hello kitty og tékka hvort hún myndi dreyma hello kitty.  Okkur fannst þetta eithvað svaka fyndið þar sem við gerðum 3 tilraunir til að komast inní herbergið án þess að drepast úr hlátri en í 4 tilraun komumst við alveg að rúminu áður en við sprungum og tókst að vekja röggu í leiðinni.  Annars þá leit Ida út fyrir að sofa enn þannig að ég beyji mig yfir hana og ætla að fara að kvísla en þá segjir hún "Lóa ég er vöknuð" og þá sprungum við aftur og vorum liggjandi á gólfinu hlægjandi í langann tíma.
Kom heim í dag breytti herberginu mínu, Ida fékk nýtt herbergi þannig að hún er núna ein í herbergi.

Ef þetta er eithvað ruglingslegt þá er það af því að ég er svo anskoti þreitt en annars
Adios amigos  or something like that..

mest notaða orðið í ferðinni: Thingy

13. október 2007 klukkan 22:22
Lóa Júlía Antonsdóttir
2 athugasemdir
20september

hata ađ ţrýfa

jæja þá er komið að nýju bloggi ætla ekki að hafa þetta langt núna er að svíkjast undan hreingerningaskyldunni því ég einfaldlega nenni þessu ekki en ætla að láta vita að ég er komin með nýtt númer og það er 51 19 68 89 endilega hringja eða senda sms, þó ég myndi vilja hringja í ykkur þá er það bara s vo dýrt og erfitt fyrir mig að redda mér inneign þar sem ég veit ekki enn hvar ég get keypt þær þar sem aðal matvörubúðin selur þær ekki.

Svo væri æðislegt að fá bréf Glottandi því það er lesið upp í hádegismatnum og ég hef bara einusinni fengið bréf og það var reikningurinn frá skólanumGráta

en heimilisfangið er:
Lóa Júlía Antonsdóttir
Engelsholm hojskole
Engelsholmvej 6
7182 Bredsten
DANMARK


hlakka til að fá bréf :P
20. september 2007 klukkan 10:40
Lóa Júlía Antonsdóttir
8 athugasemdir
15september

ţreitt

hæhæ komið annað blogg :P
Gærdagurinn var rosa fínn ég fór í tíma og svo var ég með frí það sem eftir er af deginum því að ég gleymdi óvart einum fundinum. ÚPS.   En allavega eftir hann kom kristín uppá herbergi til mín og við fórum í smá göngutúr bara sirka klukkutíma því ég þrufti að mæta í eldhúsið.  Var mikið að gera þar þannig að ég var ekki búin fyrr en um 7 leitið.  Fór þá til Kristinar og vorum að hlusta á tónlist og svo ákváðum við að fara í göngutúr.  Guð minn góður, föttuðum ekki fyrr en við vorum komnar soldið langt að það var komið myrkur og við sáum voða lítið.  Löbbuðum rösklega til ny norup og  komumst að því að bensínstöðin sem við ætluðum að kíkja á var lokuð þannig að við snérum við.  En það hafði greyniega dimmt meira meða við vorum að labba í bænum því að á leiðinni til bara þá sáum við ekki hvor aðra né veginn sáum bara rétt frammfyrir okkur þannig að við vissum að við værum á réttri leið. Ojj bara hvað þetta var ógeðslegt enginn ljós og mjór vegur í gegnum skóg.  En annars þegar við komum til baka var farið beint í kjallarann að fá sér bjór til að ná sér niður :P en endaði einhvernvegin í pingpong spili með kristinu, silje, Idu og Doma en reglurnar voru þær að sá sem er hægramegin slær eða gefur upp og svo á hann að hlaupa yfir á hinn endann og þessi leikur gekk í soldla stund þannig að maður var orðinn vel þreittur. 

Í dag þurfti ég að vakna snemma því ég þurfti að vera í eldhúsinu og svo var svo mikið að gera að ég fékk að fara um hálf 9 leitið og fór ég þá í tónlistar stúdíóið með Kristinu og hún fór að spila á rafmagns gítar og ég að glamra á píanó en svo þurfti einhver hljómsveit að nota stúdíóið þannig að við fórum bara í enn einn göngutúr, er byrjuð að labba soldið mikið núna. Eftir að ég þurfti að klára the kitchen duty fór ég með Kristínu til vejle með rútunni sem við þurftum nota bene að hlaupa til að ná.  En vorum þar til korter yfir 4 bara að skoða í glugga og í nokkrar búðir og bara að slæpast og svo kom ég heim rétt í tæka tíð fyrir meiri kitchen duty ojj bara og er að fara aftur á eftir klukkan hálf 10 issssss.En annars nenni ekki að skrifa eithvað meira þannig að bless í bili
15. september 2007 klukkan 17:26
Lóa Júlía Antonsdóttir
1 athugasemd
13september

Í danmörku er gott ađ vera en Íslandiđ er samt alltaf miklu betra......eđa eitvađ

Jæja ætla að bæta fyrir litla bloggið í gær var nefnilega ekki alveg að nenna að blogga Skömmustulegur

En allavega í gær gerðist:
Var í fríi fyrir hádegi þannig að ég gat valið um það að fara að sofa efir kvöldmat eða að fara út að labba og ég ákvað að vera heilsusamleg og fara út að labba og tók einn rösklegann hring ( get ekki beðið eftir að fá hlaupaskóna þannig að ég geti prófað að skokka).  Fór svo í fyrsta tímann í aukafaginu sem var skartgripahönnun.  Og fengum við það verkefni að búa til hring.  OMG hvað þetta var leiðinlegt það eina sem hélt mér gangandi var tilhusunin um að í endann ætti ég fallegann hring.  Kerlingin sem kennir þetta talar enga ensku og ef við reynum eithvað að tala við hana á bjöguðu dönskunni okkar þá fer hún að panikka eins og ég veit ekki hvað Fýldur  En annars var þetta þokkalegt það eru 3 strákar í þessum tíma sem mér finnst hálf fyndið.  En það var tobias "skemmtilegi" gaurinn og svo báðir norðmennirnir.  Talaði aðeins við þá í tímanum og þeir voru eiginlega ekki að skylja kerlinguna sem ég skil vel því ég skildi ekki rassgat sem hún sagði.  En annars er ekki mikið að segja frá þessum hring en það að ég var asoldið á eftir öllum að gera hann og orðin soldið fúl á að vera alltaf að hita hann og setja í sýruna sem við gerðum að mér fannst alltof oft.  En allavega kellingin fer að sýna okkur hvernig á að festa hann saman og hún setur eithvað sem var gult og sjálflýsandi á hann sem mér fannst líta hættulega út og sjóða hann svo saman eða eithvað þá nennti ég þessi ekki lengur og sagðist ekki vilja sjóla minn saman heldur hafa hann opin og láta endana fara frammhjá hvorn öðrum.  Okey ég mátti það og hann varð helvíti flottur og allir sem voru á leiðinni að sjóða sinn saman dauðsáu eftir því af því þeim fanns minn flottari Hlæjandi


Eftir það var kvöldmatur sem var ekkert spes var bara smurt brauð sem að mínu og Ragnheiðar mati ekki matur!!  En allavega eftir kvöldmatinn fór ég uppí herbergi og ætlaði að kúra aðeins áður en að ég færi út að labba með Ragnheiði en þá bánkar einhver hjá mér. Ég var búin að gleyma ða ég var búin að lofa Kristínu frá Noregi að sýna henni myndir frá íslandi, sem ég gerði og henni fundust þær flottar, og ég komst líka að því að hún er hrifin af fötum úr búðinni gyllti kötturinn og myndi vilja fara bara til íslands til að fara að versla þar.  En annars þá Kom Kristin með mér og Ragnheiði út að labba sem var fínt við vorum 3 stelpur sem vorum ekkert fastar í einhverri grúppu.  Vorum held ég næstum 2 tíma að labba því við vorum að tala svo mikið Hlæjandi kíktum líka á gröf hjá einhverjum frægum kalli sem var víst í hells angels móturhjólagenginu og í einhverju dönsku metal bandi, Mjög spes gröf mynd af hauskúpu á henni og stelndur "The ultimite sacrifice" bara rétt safsettGlottandi  En komst líka að því að Krisitin er bara ári yngri en ég, ég talaði við hana í partýinu á laugardaginn og þá heyrðist mér hún segja að hún væri 17 ára!! soldið vandræðalegt þegar það komst upp að ég vissi ekki alveg hvað hún var gömul.  En annars þegar við komum heim voru tónleikar í slottinu sem við ætluðum að losna við með að fara í gönguna en þeir voru víst bara hálfnaðir!  Þannig að okkur var ítt innog við þurftum að hlusta til enda sem var allt í lagi konan söng vel en bara ekki tónlist sem ég fíla þannig séð, Eftir það var farið í kjallarann með kristínu að spila borðtennis og hanga.  Ætlaði að fara að sofa um hált 12 leitið en Ida bauð mér að koma hanga með henni og öðrum í eldhúsinu fórum báðar að sofa um 12 hálf 1 og Ida var að segja mér í dag að við hefðum átt að vaka því við misstum að geðveiku djammi...eithvað teinkt því að houie hafi sungið spice girls náði ekki alveg hvað hún var að segja Óákveðinn 
Dagurinn í dag: ( guð þetta er að vera langt blogg)
Byrjaði daginn drulluþreitt fékk mér mína venjulegu grænmetishrúgu og kaffi í morgunmat og svo var farið í sögutíma....saga er leiðnleg.....hún er enn leiðinlegri þegar maður situr á vondum stólum.... og óbærinleg þegar hún er á DÖNSKU.  Allavega höfðum málingartíma eftir hádegismat og fengum að læra að gera expressionísk málver eða held það srétta nafnið en það þýðir að maður á að kasta málingu á blað eða striga með ákveðni og krafti og þetta eru oftast magnþrúngin verk og krefjandi.  Ekki þessi týpísku málverk og við fengum hálfpartinn frjálsar hendur.  Allavega ég gerði 2 stór þar sem ég notaði þessa týpísku aðferð og svo ákvað ég að taka 4 lítil blög og setja rétt hjá vort öðru og vinna að þessum 4 mismunandi myndum samtímis.  Og fór þá að nota hendurnarGlottandi Dreifa úr henni með höndunum og svo nota puttana til að skvetta málingu á myndirnar sem var helvíti gaman fyrir utan það að hendurnar á mér eru í öllum regnboganslitum núna En allavega ég vann alveg framm að kvöldmat og ákvað svo að labba í búðina sem ég hélt að væri rétt hjá guð hvað mér skjátlaðist!!  Fór fyrst í vitlausa átt en fattaði það fljótt þannig að ég gat snúið við en allavega fór í búðina til að kaupa nokkra hluti og að skreppa snögglega í búðina tók einn og hálfann tíma!! en annars fór bara aftur að vinna á vinnustofunni og svo bara inní rúm þar sem ég er núna með tölvuna í fanginu.

Þetta blogg átti alls ekki að verða svona langt en vonandi nennir einhver að lesa þetta til enda, veit að ég mundi mjög líklega ekki nenna því en annars næsta blogg verður ekki svona langt..... vonandi....hehe nei smá grín það verður styttra.
Kv. Lóa

13. september 2007 klukkan 19:33
Lóa Júlía Antonsdóttir
8 athugasemdir
12september

miđvikudagur

Eitt stutt blogg því ég er ekki búin að blogga síðan á 10.
Búið að vera fínt búin að labba mikið og svo er ég búin að kynnast röggu aðeins meira og við ætlum saman út að labba í kvöld.  hmm ekkert neitt mikið að gerast bara að læra á fullu og þannig
blablabla nenni þessu ekki skrifa meira þegar ég hef meiri tíma bless á meðan
12. september 2007 klukkan 15:05
Lóa Júlía Antonsdóttir
2 athugasemdir
10september

Topish

Jæja þá er annað blogg á leiðinni en það mætti halda að það væri svo leiðinlegt að ég hafi ekkert betra að gera en að blogga en það er ekki málið.  Ég hef bara svo svakalega mikinn frítíma að ég hef tíma til að skella inn einu bloggi á dag.  Bloggaði reyndar ekkert í gær en ég setti myndir inná síðuna... fyrstu myndirnar!! Hlæjandi  Í gær var svo gott veður að ég ákvað að kíkja í göngutúr um svæðið og var í sirka klukkutíma kom svo til baka til að fara í einvern göngutúr með skólannum sem var 1 og hálfur tími þannig að ég var alveg ógeðslega dugleg í gær Hlæjandi við gengum hringinn í kringum vatnið sem er í bakgarðinum á höllinni.  Eftir það settumst við hellingur af fólki á túnið fyrir framan með nestið okkar og fórum í sólbað og spjalla.

Ætlaði að taka kvöldinu rólega inná herbergi vera á msn og þannig og fara svo á sang aften, En Ida kom upp og bauð mér að koma með henni og miröndu og dönskum strák sem heitir eithvað hehe man ekki akkúrat núna en allavega ég ákvað að fara með þeim og við sátum úti í garði og vorum að drekka þegar þeim datt allt í einu í hug að fara í drykkuleik og þau útskýrðu bæði á dönsku og norsku reglurnar og ég hélt ég vissi þær en á endanum komst upp að ég vissi þær ekki rassgat en allavega kláruðum 2 vínflöskur á innan við 20 mínútum og ákváðum þá að sleppa því bara að fara á söngstundina en fórum í staðin niður í kjallarann.  Og þar vorum við 3 stelpur með 12 strákum í drykkjuleik framm eftir kvöldi, kláruðum allan tuborginn sem var til og strákarnir voru komnir langleiðina með að klára hina tegundina. 

Svo fóru stelpurnar út að reykja og ég kom bara með til að spjalla við þær og þær fara að tala við strák sem sagðist heita kristian með rosa dönskum hreim og þá kem ég á minni æðislegu ensku : " and from what country are you?".....hann horfir á mig og svarar " the same as you"..."ehhhh úps"  soldið vandræðanlegt en þá gat ég farið að tala við hann á íslensku og náði reyndar líka að tala við hinn íslenska strákinn sem var víst alltaf á leiðinni að fara að tala við hina íslendingana en var samt ekkert alveg að þora að labba uppað okkur.  En allavega kvöldið hélt áfram og fólk fór að fara heim og klukkan 12 fóru Ida og Miranda upp að sofa en ég var búin að koma mér inní póker leik með nokkrum norskum og dönskum strákum og já einum íslendingi en hann fór í kringum miðnætti.  En allavega vorum að spila á fullu þegar einum dettur í hug að ná í 2 flöskur af rauðvíni því barinn var lokaður og svo þegar hann kemur til baka fatta strákarnir að við erum ekki með nein glösHissa finnur þá einn norski gaurinn ekki helling af kertasjökum svona fyrir sprittkerti og finnst þetta vera hin fínustu glös.  Og þannig sátum við drukkum rauðvín úr kertastjökum og spiluðum póker til hálf 2 og þá ákváðum við að fara bara að sofa.  Ég fer uppí herbergi og var að bursta tennurnar (vaskurinn sem er inná herbergjunum er hliðina á hurðinni) og þegar ég sný mér við til að læsa hurðinni er hún opin og Henrik norskur gaur sem var það fullur að hann stóð varla í lappirnar var að kíkja inn og okkur bregður báðum soldið mikið en hann var að leita að Idu en hún var steinsofandi. 

Og í morgun vaknaði ég hálf 8 viðbjóðslega þunn og alveg að drepast, en verkjatafla og kaffibolli hjálpuðu mikið.  Svo var fyrsti tíminn í að mála og fékk ég að búa til minn eiginn striga og svo mála á hann, var pínu skjálfhennt en þegar leið á daginn og eftir hádegismat þá lagaðist það.  En annars þetta er yfirlit yfir síðustu 2 daga.

Kv. Lóa

10. september 2007 klukkan 14:50
Lóa Júlía Antonsdóttir
3 athugasemdir

Ađalvalmynd

Auglýsing